Ferðaáætlun 2017 fjall mánaðarins

Veldu mánuð:  Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember

Janúar

Ystuvíkurfjall. Fjall mánaðarins. Gönguferð skor skor Fjall
28. janúar. Brottför kl. 9
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá bílastæðiá Víkurskarði til vesturs upp hlíðinaog á toppinn, 552 m. Þaðan er gott útsýni yfir til byggðarinnar vestan fjarðarins og til Hríseyjar. 6 km. Hækkun 220 m.

Febrúar

Skólavarða á VaðlaheiðiFjall mánaðarins skor skor Fjall
18. febrúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að uppgöngunni í Veigastaðalandi og gengið eftir merktri leið upp á heiðina að vörðunni. 2-3 klst. Létt ganga.

Mars

Harðarvarða á Hlíðarfjalli. Fjall mánaðarins. Gönguferð. skor skor skor Fjall
18. mars. Brottför kl. 9á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan eftir Mannshrygg upp á Hlíðarfjall og síðan vestur að vörðunni.Vegalengd alls 10 km.

Apríl

Uppsalahnjúkur. Fjall mánaðarins. Gönguferð skor skor Fjall
22. apríl.Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Öngulsstöðum og að sumarhúsinu Seli. Gengið upp að vörðunni nyrst á Öxlinni og áfram inn eftir fjallinu. Síðan upp norð-austur hrygg fjallsins á hnjúkinn, 1100 m. 10 km alls. Hækkun 930 m.

Maí

Súlur. Fjall mánaðarins. Göngu- eða skíðaferð skor skor skor Fjall
1. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Innifalið: Fararstjórn. Þátttaka er ókeypis. Árleg ferð á bæjarfjall Akureyrar, 1143 m. Nokkuð auðveld gönguleið á fjallið. 11 km. Hækkun 880 m.

Júní

Miðhálsstaðaháls. Fjall mánaðarins skor skor Fjall
3. júní. Brottför kl. 8á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er frá Miðhálsstaðarskógi, suður og upp með hryggnum. Siðan er gengið niður sömu leið og er leiðin mjög auðfær. Vegalengd samtals 8 km. Gönguhækkun 370 m.

Júlí

Ystuvíkurfjall - Laufáshnjúkur. 3ja tinda ferð fjall mánaðarins skor skor skor Fjall
29. júlí. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að bílastæðinu á Víkurskarði, gengið á Ystuvíkurfjall og þaðan norður eftir tindunum Kræðufelli og Laufáshnjúki og endar gangan í Laufási. 13 km.

Ágúst

Hreppsendasúlur. Fjall mánaðarins 1052 m skor skor Fjall
12. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Haldið á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir við stórkostlegt útsýni til allra átta. Þetta er frekar létt ganga við hæfi flestra. Alls 6 km. Hækkun 850 m.

September

Hleiðargarðsfjall. Fjall mánaðarins skor skor Fjall
2. sept. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið er á Hleiðargarðsfjall frá Saurbæ og haldið upp fjallshrygginn þar til komið er á toppinn.  Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn af fjallinu. Farin er sama leið til baka.10 km hvor leið. Hækkun 960 m.

Október

Hallok. Fjall mánaðarins (998 m) skor skor Fjall
7. október. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Hrauni í Öxnadal og er gengið þaðan á fjallið. Vegalengd: 9 km. Hækkun: 780 m.

Nóvember

Þingmannahnjúkur. Fjall mánaðarins skor skor Fjall
11. nóvember. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið að Eyrlandi og genginn Þingmannavegurinn upp í heiðina og upp á Þingmannahnjúkinn og áfram á Leifsstaðafjall ef aðstæður leyfa. Vegalengd samtals 8km. Gönguhækkun 530 m.

Desember

Draflastaðafjall, 734 m. Fjall mánaðarins. skor skor Fjall
12. desember. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið frá bílastæði efst á Víkurskarði og upp á fjallið, notið útsýnis og genginn góður hringur á fjallinu.
Þetta er frekar létt ganga við flestra hæfi. Vegalengd 10 km. Hækkun 390 m.

Veldu mánuð: Janúar Febrúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember

Nýtt: Veldu: Fjall á mánuði,Fjall,

Janúar 

Nýársganga
1. janúar.  Brottför kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn. Verð: Frítt
Farið út í óvissuna til að fagna nýju ári.

Létt skíðaferð skidi
7. janúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn. Verð: Frítt
Upplögð fjölskylduferð.

Létt skíðaferð skidi
21. janúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn. Verð: Frítt.Ferð við allra hæfi.

26. janúar.   Ferðakynning
Ferðir ársins kynntar í máli og myndum í Verkmenntaskólanum gengið inn að vestan, kl. 20.00.
Frímann Guðmundsson, formaður ferðanefndar kynnir.
Fyrirlesari: Hjalti Jóhannesson.  Sýnir og kynnir Bræðrafellsævintýrið.
Kynning á því nýjasta í útivistarvörum.

Ystuvíkurfjall. Fjall mánaðarins. Gönguferð skor skor Fjall
28. janúar. Brottför kl. 9
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá bílastæðiá Víkurskarði til vesturs upp hlíðinaog á toppinn, 552 m. Þaðan er gott útsýni yfir til byggðarinnar vestan fjarðarins og til Hríseyjar. 6 km. Hækkun 220 m.

Febrúar

Kjarnaskógur. Skíðaferð skidi skidi
4. febrúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn. Verð: Frítt
Ljómatún, Gamli, Hvammsskógur.

Þorraferð í Fjallaborg. Skíðaferð skidi
11.-12. febrúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð:  5.500/5.000. Innifalið: Gisting og fararstjórn.
Ekið á einkabílum austur eftir þjóðvegi 1 á móts við Skógarmannafjöll. Þaðan er gengið á skíðum suður að skálanum Fjallaborg við Rauðuborgir (8,5 km) þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið að hætti skógarmannaí friðsæld öræfanna.Daginn eftir er gengið til baka í bílana. Hámarksfjöldi 10 manns.

Skólavarða á VaðlaheiðiFjall mánaðarins skor skor Fjall
18. febrúar. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Ekið að uppgöngunni í Veigastaðalandi og gengið eftir merktri leið upp á heiðina að vörðunni. 2-3 klst. Létt ganga.

Mars

Krafla-Mývatn. Skíðaferð skidi skidi
4. mars. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 12073139931970019120cross%20country%20skii%20trail%20white_svg_med12073139931970019120cross%20country%20skii%20trail%20white_svg_med
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið í Kröflu. Gengið þaðan að Leirhnjúki og hann skoðaður. Þaðan gengið um Sátu og norðan við Hlíðarfjall. Ferðin endar á að renna sér niður þægilega hallandi gil og að flugvellinum.  Um 12 km. Lækkun 260 m.

Lambi. Skíðaferð skidi skidi skidi
11. mars. Brottför kl. 9
á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Í góðu færi er þetta frekar létt ferð. Gangan hefst við bílastæðið v. Súluveg. Vegalengd 11 km hvor leið. Hækkun 440 m.

Harðarvarða á Hlíðarfjalli. Fjall mánaðarins. Gönguferð. skor skor skor Fjall

18. mars. Brottför kl. 9á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið að Skíðastöðum og gengið þaðan eftir Mannshrygg upp á Hlíðarfjall og síðan vestur að vörðunni.Vegalengd alls 10 km. Hækkun: 400 m.

Árskógsströnd. Skíðaferð skidi skidi
25. mars. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. 
Gengið frá Vík um sveitina og niður að Litla Árskógssandi og inn ströndina. Vegalengd um 15 - 20 km á sléttlendi, fer eftir færi og aðstæðum.

Apríl

Kötlufjall skor skor
1. apríl. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er frá Kálfskinni og farið upp fjallshrygginn, nokkuð brattan á kafla,þar til komið er á norðurenda fjallsins. Farin er sama leið til baka. 5 km hvor leið,hækkun 820 m.

Skíðastaðir-Þelamörk. Skíðaferð skidi skidi
8. apríl. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá Skíðastöðum út hlíðina á Sjónarhól. Þægilegt rennsli niður að Þelamerkurskóla. Farið í heita pottinn (ekki innifalið). Frekar létt ferð við flestra hæfi.

Uppsalahnjúkur. Fjall mánaðarins. Gönguferð skor skor
22. apríl.Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Öngulsstöðum og að sumarhúsinu Seli. Gengið upp að vörðunni nyrst á Öxlinni og áfram inn eftir fjallinu. Síðan upp norð-austur hrygg fjallsins á hnjúkinn, 1100 m. 10 km alls. Hækkun 930 m.

Maí

Súlur. Fjall mánaðarins. Göngu- eða skíðaferð skor skor skor Fjall
1. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Innifalið: Fararstjórn. Þátttaka er ókeypis. Árleg ferð á bæjarfjall Akureyrar, 1143 m. Nokkuð auðveld gönguleið á fjallið. 11 km. Hækkun 880 m.

Gásir og Gásafjara. skor
6. maí. Brottför kl. 9
á einkabilum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gásir við Eyjafjörð eru einstakur staður. Þar var verslunarstaður á miðöldum og má sjá þar friðlýstar fornleifar. Gengið verður um fjöruna og umhverfið skoðað.

Fuglaskoðunarferð skor
13. maí. Brottför kl. 10
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Árleg fuglaskoðunarferð FFA.

Hjóla og gön guferð Hjol Hjol Hjol
20. maí. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. Sjá mánar á ffa.is.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.

Reistarárskarð-Flár, 1000m. Skíðaferð skidi skidi
27. maí. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Stigið á skíðin í skarðinu og sveigt upp á Flár, hábungu fjallsins. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa og til baka norður í skarðið. 20 km. Hækkun 950m.

Júní

Miðhálsstaðaháls. Fjall mánaðarins skor skor Fjall
3. júní. Brottför kl. 8á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er frá Miðhálsstaðarskógi, suður og upp með hryggnum. Siðan er gengið niður sömu leið og er leiðin mjög auðfær. Vegalengd samtals 8 km. Gönguhækkun 370 m.

Gengið kringum Ljósavatn. skor skor
10. júni. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Arnstapa þar sem gangan hefst og gengið umhverfis vatnið og hugað að gróðri og fuglalífinu. Þægileg ganga fyrir alla fjölskylduna. Vegalengd 9 km.

Gönguvika 1  19-23. júní.

Miðvíkurfoss skor
19. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Sumarsólstöður á Múlakollu skor skor skor
20. júní. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið upp á Múlakollu, 970 m, frá gamla Múlaveginum og upp dalinn norðan Brimnesár. 8 km.

Reyká skor
21. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Miðvíkurfjall. Jónsmessunæturganga skor skor
22. júní. Brottför kl. 21
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Fararstjóri.  Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið frá veginum við Hrossagil efst í Víkurskarði. Af fjallinu blasir Eyjafjörðurinn við og fjöllin vestan hans. Þægileg ganga við flestra hæfi. 2 km, hækkun 270 m.

Gilsá skor
22. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Bryðjuskál skor
23. júní. Brottför kl. 19
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Júlí

Raðganga 1: Þorvaldsdalur-Hörgárdalur skor skor
1. júlí. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 6.500/6.000. Innifalið: Rúta, Fararstjórn.Ekið að Stærra-Árskógi og að Hrafnagilsá ef færð leyfir.Gengið þaðanað Fornhaga í Hörgárdal, 25 km. Mesta hæð 520m. 

Meðfram Glerá skor skor
8. júlí. Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.Gengið meðfram Glerá frá Heimari-Hlífá til ósa. Frábær og áhugaverð gönguferð í okkar nánasta umhverfi þar sem skoða má sjaldséðar jurtir. Göngutími 4-5 klst.

Almannavegur – forn leið umÓdáðhraun skor skor skor
15.- 16. júlí. Brottför kl. 8
í fjallarútu frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 41.500/41.000  Innifalið: Fararstjórn,akstur og gisting.
Ekið austur að Hrossaborg og suðurHerðubreiðarslóð (F88) á móts við Ystafell sunnanvert þar sem gangan hefst.Bíll flytur svo trúss í Fjallaborg. Gengið um hraunið til vesturs í stefnu á Vörðukamb í Fjallagjá og þaðan fylgt vörðum í átt að Sveinagjá. Þegar komið er yfir gjána er tekin stefna af vörðuleiðinn norður með Nýjahrauni og í Fjallaborg þar sem gist verður. Daginn eftir er gengið um Taglabruna suður á vörðuleiðina og þá vestur um Þrengsli og að Lúdentsborgum þar sem bílinn bíður.Vegalengd alls um 47 km. 
Ath. Að ekkert vatn er að hafa á leiðinni.

Gönguvika 2. Sjá nánar á ffa.is.

Sesseljubúð – Hallgrímur – Háls skor skor skor
22. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ferðin hefst á Öxnadalsheiði þar sem sæluhúsið Sesseljubúð stóð. Gengið upp með Grjótá og fylgt Eystri Grjótá að Gilsárskarði. Síðan upp á Varmavatnshólafjall, þaðan sem er frábært útsýni. Þá er farið niður Vatnsdalinn meðfram Hraunsvatni og að bænum Hálsi. 17 km. Hækkun 690 m.

Gönguvika 2.  24 – 27  júlí.

Þverárgil. skor
24. júlí. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.
Hrappstaðafoss. skor skor
25. júlí. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.
Haus, Staðarbyggðarfjall 420 m  skor skor
26. júlí. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Vaðlareitur. skor
27. júlí. Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 1.000/500 Innifalið: Fararstjórn.

Raðganga 2: Krossastaðir - Skíðastaðir skor skor skor
29. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekið að Krossastöðum á Þelamörk og gengið upp með Krossastaðaánni og á Hlíðarfjall, þaðan niður að Skíðastöðum11 km. Hækkun 1080m, Mesta hæð 1110 m.

Öskjuvegur 1. skor skor skor
28. júlí – 1. ágúst. Brottför kl. 17
með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 81.000/75.000. Innifalið: Akstur, flutningur, gisting og fararstjórn.
Skráningargjald kr. 10.000 greiðist við bókun. Lágmarksfjöldi: 10.
Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað og svefnpoka, ekið er með farangur á milli skála.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðarlindum. 
2.d. Gengið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju og ef til vill farið í sund í Víti. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3.d. Ekið í Öskjuop, gengið yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli. 14 km.
4.d. Gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna. 20-22 km.
5.d. Gömlum jeppaslóða fylgt niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. 15-16 km.Ekið til Akureyrar.

Bræðrafell. skor skor skor
28. - 30. júlí. Brottför kl. 8
á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: . 7.500/5.000. Innifalið: Gisting og fararstjórn.
1. d. Ekið frá Akureyri í Herðubreiðarlindir. Eftir hressingu er gengið í Bræðrafell  17 km um hraun fremur gott yfirferðar. Gist í Bræðrafelli
2. d. Gengið um Bræðrafellið og hinar ýmsu jarðmyndanir skoðaðar þaðan á  Kollóttudyngju og hinn stóri gígur litinn augum. 
3. d.Þá er gengið meðfram Herðubreið í Herðubreiðarlindir og á leiðinni skoðaðir margir gígar, dríli og hellar og síðan er ekið heim á leið.

Ystuvíkurfjall - Laufáshnjúkur. 3ja tinda ferð fjall mánaðarins skor skor skor Fjall
29. júlí. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að bílastæðinu á Víkurskarði, gengið á Ystuvíkurfjall og þaðan norður eftir tindunum Kræðufelli og Laufáshnjúki og endar gangan í Laufási. 13 km.

Ágúst

Bræðrafell-Kollóttadyngja-Askja. skor skor skor
11.– 15. ágúst. Brottför kl. 17
með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri:  Verð: 70.000/62.000. Innifalið: Akstur, gisting og fararstjórn.
Skráningargjald kr. 10.000 greiðist við bókun. Lágmarksfjöldi: 10.
Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað og svefnpoka, ekið er með farangur á milli skála.
1.d. Ekið í Herðubreiðarlindir. Gengið þaðan í Bræðrafell, nýjan skála FFA og gist þar, 17 km.,
2.d.Gengið á Kollótudyngju og Bræðrafellið skoðað. Gist í Bræðrafelli.
3.d.Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil, 17 km.Gist í Dreka.
4.d.Gengið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju og ef til vill farið í sund í Víti.
Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka Ekið heim um kvöldið.

Hreppsendasúlur. Fjall mánaðarins 1052 m skor skor Fjall
12. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Haldið á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir við stórkostlegt útsýni til allra átta. Þetta er frekar létt ganga við hæfi flestra. Alls 6 km. Hækkun 850 m.

Kerling. Sjö tinda ferð skor skor skor skor
19. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 4.500/2.500. Innifalið: Fararstjórn.Gengið á Kerlingu í Eyjafirði, 1538 m, frá Finnastöðum og svo norður eftir tindunum Hverfanda, Þríklökkum, Bónda, Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðrisúlu og Ytrisúlu. Endað í Glerárdal. 20 km.

Gullvegurinn skor skor skor
26. ágúst. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gömul reiðleið frá Helluvaði í Mývatnssveit vestur að Arndísarstöðum í Bárðardal. Vegurinn var gerður á árunum 1879-1897. Staldrað er við hjá eyðibýlunum og sagan rifjuð upp. 20 km.

Hólabyrða. skor skor skor skor
27. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið er frá Hólum í Hjaltadalum brattar skriður og fjallseggjar á norðurenda fjallsins og á hápunktinn í 1250 mhæð. Gengin er önnur leið niður en gangan endar á sama stað. Komið er við í Gvendarskál. 11 km báðar leiðir, hækkun um 1000 m.

September

Hleiðargarðsfjall. Fjall mánaðarins skor skor Fjall
2. sept. Brottför kl. 8
á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið er á Hleiðargarðsfjall frá Saurbæ og haldið upp fjallshrygginn þar til komið er á toppinn.  Gott útsýni er yfir byggðina og út Eyjafjörðinn af fjallinu. Farin er sama leið til baka.10 km hvor leið. Hækkun 960 m.

Heljardalsheiði. skor skor skor
9. september. Brottför kl. 8
í rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 13.500/13.000  Innifalið: Fararstjórn, akstur.
Gengin er forn þjóðleið frá Atlastöðum í Svarfaðardal upp að Stóruvörðu þar sem  gönguskáli Svarfdæla er. Leiðin liggur eftir götuslóð niður í Heljardal þar sem þarf að vaða Heljará. Neðan við Heljarbrekkur er Kolbeinsdalsá sem vaða þarf yfir, (verður ferjað ef mikið vatn er í ánni). Þá er gengin vegslóð að eyðibýlinu Fjalli til móts við bílinn. Ef aðstæður leyfa verður staldrað við á Hólum.

Umhverfis Héðinsfjarðarvatn. skor skor
16. september.Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.

Gæsadalur-Skuggabjargaskógur. skor skor skor
23. september. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn. Gengið frá bílastæði á Víkurskarði upp hlíðina og norður Gæsadalinn og komið niður á vegslóða og að eyðibýlinu Skuggabjörgum, 8 km. Gengið þaðan vegslóðann um skóginn að Draflastöðum 7 km.