Lýðheilsuganga FFA 25. september

Þessi ganga er sérstaklega ætluð unglingum og foreldrum þeirra. Mæting er við húsnæði FFA við Strandgötu 23 rétt fyrir kl. 18. Þaðan verður farið með rútu að Hömrum þar sem lagt verður af stað í göngu upp í Gamla, niður í Kjarnaskóg og aftur að Hömrum þar sem grillað verður í boði FFA. Þessi ganga er í samstarfi við félagsmiðstöðvarnar á Akureyri.