23.-26. júlí: Bræðrafell-Askja -laus pláss
20. júlí 2021

 Bræðrafell-Askja  

Brottför kl. 8   á einkabílum (jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Frímann Guðmundsson
Verð: 35.000/23.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
1.d. (föstudagur)  Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffihressingu er gengið um fremur greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar, 17 km.
2.d.  Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála.
3.d.  Gengið frá Bæðrafelli í Drekagil, 17 km. Gist í Dreka.
4.d.  Gengið frá Dreka yfir Dyngjufjöll að Öskju. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka í Dreka þar sem bílarnir bíða. Ekið heim um kvöldið.
Bílar þátttakenda verða ferjaðir frá Herðubreiðarlindum upp í Dreka.
ATH. Takmarkaður fjöldi .