Ferðaskilmálar

  • Þátttökugjald og greiðslufyrirkomulag

    Æskilegt er að panta tímanlega í lengri ferðir og þær ferðir þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður.


    Þátttökugjald í flestar ferðir er greitt við brottför eða stuttu fyrir ferð.


    Nánari skýring um greiðslufyrirkomulag kemur fram í viðburði fyrir hverja ferð.


    Í nokkrar ferðir á ferðaáætlun 2026 þarf að greiða staðfestingargjald í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt nema ef ferð er felld niður. Gert er ráð fyrir að ferð sé greidd upp í síðasta lagi þremur dögum fyrir brottför og fæst þá ekki endurgreidd.


    Ef afpanta þarf ferð skal senda póst á netfangið ferdir@ffa.is


    Ferðafélag Akureyrar áskilur sér rétt til að fella niður ferð eða breyta ferðum ef nauðsyn krefur.


    Hreyfiverkefni og námskeið eru ekki endurgreidd eftir að þau hefjast.

  • Áætlaður tími ferða

    Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð. Ferðafélag Akureyrar tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingu.


    Í ferðum Ferðafélags Akureyrar þar sem sameinast er í bíla taka allir þátt í kostnaði með því að greiða bílstjóra hvers bíls fyrir sig.

  • Gæludýr

    Ef hundaeigandi vill taka hundinn sinn með í gönguferð með FFA þarf hundurinn að vera í taumi. Æskilegt er að taka það fram við skráningu að eigandinn ætli að taka hund með svo fararstjóri viti af því. Eigandi hundsins ber alla ábyrgð á hundinum í ferðinni.


    Ef einhver þátttakandi í ferðinni eða fararstjóri er með ofnæmi fyrir hundum eða ekki tilbúinn að fara í ferðina ef hundur er með, þá þarf hundurinn að víkja. Fararstjóri tekur af skarið um það ef þarf. Hundar geta ekki verið með í ferð þar sem rúta flytur hópinn.


    ATH. Gæludýr eru EKKI leyfð í skálum FFA.

  • Tryggingar

    Ferðafélag Akureyrar tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingar.

  • Öryggisáætlun FFA

    Ferðafélag Akureyrar vill stuðla að öryggi í ferðum, í skálum og á tjaldsvæðum félagsins eins og kostur er. Til þess var gerð öryggisáætlun sem mikilvægt er að þátttakendur í ferðum og þeir sem gista í skálum og á tjaldsvæðum félagsins kynni sér. Þannig er reynt að tryggja öryggi allra í hvívetna.


    Hana er hægt að sjá á heimasíðu FFA undir "Félagið" eða á þessum tengli