
Aðalfundur FFA 2026 var haldinn 2. mars
Aðalfundur Ferðafélags Akureyrar 2026 var haldinn 2. mars sl. Ársskýrsla stjórnar fyrir 2025 var lögð fram og lesin upp. Í henni var komið inn á helstu verkefni stjórnar og allra nefnda á árinu 2025. Skýrsla stjórnar og allra nefnda félagsins verða birtar í tímariti FFA, Ferðum 2026, sem kemur út á næstunni.
Ársreikningar 2025 voru kynntir ítarlega og samþykktir. Nefndarfólk í 13 nefndum sem verða starfandi 2026-2027 var kynnt. Þorgerður formaður FFA gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var kosinn nýr formaður, Gunnar Már Gunnarsson. Aðrar breytingar á stjórninni voru að Þorvaldur Rafn Kristjánsson fór aftur í aðalstjórn.
Kosin var ný varastjórn, í henni eru Jón Kristinn Helgason og Arna Ívarsdóttir.
Í aðalstjórn 2026-2027 sitja þá Gunnar Már Gunnarsson formaður, Einar Hjartarson, Fjóla Kristín Helgadóttir, Þorbjörg Þorsteinsdóttir og Þorvaldur Rafn Kristjánsson. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund. Skoðunarmenn reikninga og skjalavörður voru einnig kosnir.
Endurnýjaðar upplýsingar um stjórn og nefndir eru komnar á heimasíðu FFA
