Afmæliskaffi í Dreka
20. júlí 2026

90 ára afmælisfagnaður FFA heldur áfram

Öllum félagsmönnum og velunnurum FFA er boðið á sérstakan afmælisviðburð í Öskju og Dreka þann 26. júlí næstkomandi.


Dagskráin uppi á fjöllum byrjar með samverustund og göngu að Öskjuvatni og Víti. Gengið frá bílastæðinu við Vikraborgir kl. 13 - um 2 klst ganga í það heila. Að göngu lokinni er síðan ekið aftur í Drekagil og þar boðið upp á afmæliskaffi kl 15:30.