Hjalti Jóhannesson

Hjalti hefur búið á Akureyri mest allan sinn aldur ef undan eru skilin námsár í Reykjavík og Kanada þegar hann lagði stund á  landfræði. 

Hann hefur verið virkur í Ferðafélagi Akureyrar síðan upp úr 1990 og sinnt ýmsum hlutverkum, s.s. stjórnarsetu, ritstjórn, skálanefndarformennsku, fararstjórn, þátttöku í skálabyggingum og fleiru auk þess að taka einfaldlega þátt í ferðum. 


Undanfarin ár hefur Hjalti sinnt formennsku í Bræðrafellsnefnd og þar áður einnig í Þorsteinsskálanefnd. Skálanefndarstarfinu fylgir meðal annars að fara að minnsta kosti tvisvar á sumri í Bræðrafell til að sinna skálanum og líta eftir. Þannig er það svæði orðið honum vel kunnuglegt.


Hjalti er einnig félagi í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri.


Það eru ótal staðir innanlands og svæði sem Hjalti hefur gaman af að ferðast um og eftir því sem stöðunum fjölgar þeim mun betur segist hann átta sig á hvað maður á eftir að sjá mikið.