Farið um Heilagsdal

15/08/2007
| Ferðafélag Akureyrar

17. – 19. ágúst. Heilagsdalur(3 skór)

Helgarferð með göngu á Ketildyngju og Bláfjall. 

17. – 19. ágúst. Heilagsdalur(3 skór)

Helgarferð með göngu á Ketildyngju og Bláfjall. 
17. – 19. ágúst. Heilagsdalur(3 skór)

Helgarferð með göngu á Ketildyngju og Bláfjall. Á föstudagskvöldi verður ekið á Heilagsdal og gist þar í ágætum
skála Ferðafélags Húsavíkur. Á laugardaginn verður gengið á Bláfjall, 1222 metrar. Þaðan er afar mikið útsýni
enda gnæfir fjallið hátt yfir umhverfi sitt. Um kvöldið verður gist aftur í skálanum og á sunnudaginn verður gengið upp á Ketildyngju
og gígurinn og Fremrinámur skoðuð. Ekið verður heim á sunnudagskvöld.

Fararstjóri: Ingvar Teitsson

Verð: Kr. 3.600/4.800

Brottför kl. 17.00