Hvannadalshnúkur á hvítasunnu

23/05/2009
| Roar Kvam

29. – 31. maí. Hvannadalshnúkur á hvítasunnu,  2119 m. "/static/files/gonguskor1.gif" />"/static/files/gonguskor1.gif" /> 

Vegna forfalla eru 3 laus pláss í
þessa ferð og er hægt að skrá sig í ferðina á undirbúningsfundinum sem verður haldinn á skrifstofu FFA n.k. mánudag 25.
maí kl. 20.00.

ATH! Skyldumæting er fyrir þátttakendur á
undirbúningsfundinn!

Hvannadalshnúkur er hæsti tindur landsins og takmark flestra fjallgöngumanna. Þeir sem leggja á sig gönguna
uppskera ríkulega fyrir erfiðið enda er umhverfið með því stórbrotnasta sem fyrirfinnst hér á landi.
"font-size: 10pt;">Ekið á einkabílum í Skaftafell föstudaginn 29. maí og gist í svefnpokagistingu í Svínafelli.
Gengið á Hnúkinn í samvinnu við Ferðafélag Íslands laugardaginn 30. maí, en sunnudagurinn er til vara vegna
veðurs. Hæðarhækkun er 2000 metrar og má gera ráð fyrir að gangan taki í heild um 10-15 kl.st. Ekið heim daginn eftir uppgöngu.
Nauðsynlegur búnaður er: Skór með góðum sóla, mannbroddar, belti, ísöxi, sólgleraugu, sóláburður, skjólgóður
fatnaður og nesti.

Fararstjóri frá FÍ er Haraldur Örn Ólafsson.

Verð: kr. 12.000 / kr. 15.000

Innifalið: Fararstjórn, grillveisla og svaladrykkir.