Næstu ferðir

20/07/2010
| Friðfinnur Gísli Skúlason

Næstu ferðir FFA eru í erfiðari kantinum, enda flestir búnir að koma sér í form á þessum tíma. En á n.k. laugardag
verður gengið á hið skemmtilega fjall Torfufell í Eyjafirði, á sunnudeginum 25. júlí verður svo gengið á Kerlingu
í Eyjafirði og fyrir þá sem láta ekki Kerlingu eina og sér duga þá er í boði að halda áfram í norður
með súlufjallgarðinum með viðkomu á 6 öðrum tindum. Á mánudeginum verður svo lagt af stað upp á hálendi inn í
Öskju og önnur Öskjuvegsferðin gengin, það er uppselt í hana. Síðasta ferð júlí mánaðar er ganga á
Blástakk sem er fjall í tæpri 1400 m. hæð við botn Féggstaðadals inn úr mynni Barkárdals í Hörgárdal.

24. júlí. Torfufell, 1244 m.   border="0" src="/static/files/gonguskor1.gif" />   
Gangan á fjallið hefst við fremsta bæinn, Hólsgerði. Gengið er upp
brekkurnar og stefnt norðan við Hólsgerðishnjúkinn þar til komið er á fjallshrygginn og er honum síðan fylgt upp á fellið. Torfufell
ber yfir nágrannafjöllin og er víðsýnt inn yfir öræfin. Til baka er gengið um Lambárdrag niður til Villingadals.

Fararstjóri: Grétar Grímsson.

Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000

Brottför frá FFA kl. 8.00

25. júlí. Kerling , 1538 m.
Sjö tinda ferð "/static/files/gonguskor1.gif" />     

Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi. Ekið að
Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit, farið þaðan á fjallið. Þar verður ferðinni tvískipt, sumir fara sömu leið til baka,
aðrir norður eftir tindum að Súlum og niður í Glerárdalinn þar sem ferðin endar.

Fararstjóri: Vignir Víkingsson

Verð: kr. 3.000 / kr. 3.500

Innifalið: Fararstjórn.

Brottför frá FFA kl. 8.00

26. – 30. júlí. Öskjuvegur 2. Sumarleyfisferð. Trússferð   "0" src="/static/files/gonguskor1.gif" /> "FONT-WEIGHT: bold">  

Sjá lýsingu hér framar.

Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.

31. júlí. Blástakkur,  1379 m.   "/static/files/gonguskor1.gif" /> "FONT-WEIGHT: bold">  

Upphaf göngunnar er við Féeggsstaði í Barkárdal. Farið er yfir
Barká á göngubrú og gengið fram Féeggsstaðadalinn þar til áin skiptist við Féegg. Er þá farið yfir í tunguna
og gengið upp Féeggina þar til komið er upp úr dalnum í um 1200 m hæð. Er þá lagt á fjallið sem er 1379 m. Stórbrotið
útsýni yfir fjallasalinn og til Kolbeinsdals, Skíðadals og Barkárdals. Gengið til baka um Barkárdal að Baugaseli.

Fararstjóri: Konráð Gunnarsson.

Verð: kr. 1.500 / kr. 2.000

Brottför frá FFA kl. 8.00