Næstu ferðir FFA

25/08/2009
| Friðfinnur Gísli Skúlason

Næstu ferðir FFA eru á Kaldbak (1167 m) í Eyjafirði og Tröllafjall (1483 m.) í Glerárdal.

Næstu ferðir FFA eru á Kaldbak (1167 m) í Eyjafirði og Tröllafjall (1483 m.) í Glerárdal.
29. ágúst. Kaldbakur, 1173 m. "/static/files/gonguskor1.gif" />   

Kaldbakur ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum
Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór varða hlaðinn af dönsku herforingjastjórninni árið
1914.

Fararstjóri: Björn Ingólfsson.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 8.00



30. ágúst. Tröllafjall, 1483 m. "/static/files/gonguskor1.gif" /> "FONT-WEIGHT: bold">   

Ekið á bílastæðið við réttina. Gengið yfir göngubrúna á Glerá og inn bakkana að vestan, síðan yfir
göngubrúna á Fremri-Lambá og upp með ánni á norðuröxlina á Tröllafjalli.

Fararstjóri: Ingimar Eydal.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 8.00