Skíðaferð á Fláa

13/05/2008
| Ferðafélag Akureyrar

17. maí. Reistarárskarð - Flár. Skíðaferð 2 skór

17. maí. Reistarárskarð - Flár. Skíðaferð 2 skór
Ekið er á einkabílum að Freyjulundi við Reistará og gengið þaðan upp norðan ár. Þegar komið er upp í skarðið er
stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins (1000 m.), þar sem góð útsýn er yfir
Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið er áfram suður eftir fjallinu uns haldið er til baka.



Fararstjóri: Grétar Grímsson.

Verð: Frítt / kr. 1.000

Brottför kl. 9.00



Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins

og föstudaginn 16. maí milli kl. 17.30 -19.00

eða í tölvupósti ffa@ffa.is



Smellið hér til að sjá myndir frá ferð sem farin var
í fyrra.





Ferðanefnd FFA