Sparisjóður Norðlendinga styrkir Ferðafélag Akureyrar
20/11/2006
| Ferðafélag Akureyrar
Sparisjóður Norðlendinga
styrkir Ferðafélag Akureyrar um eina milljón
króna

Sparisjóður Norðlendinga
styrkir Ferðafélag Akureyrar um eina milljón
króna
Ferðafélagið (FFA) hefur unnið að því hörðum höndum í sumar við að reisa nýtt
hús sem ætlað er að standa við Drekagil í Dyngjufjöllum. Með tilkomu hússins verður bætt úr brýnni þörf fyrir
gestamóttöku, upplýsingarmiðstöð og landvarðarbústað á svæðinu.
Ferðafélagið leitaði til Sparisjóðs Norðlendinga með styrk í þetta verðuga verkefni og svaraði Sparisjóðurinn með
því að veita félaginu 1.000.000 kr. styrk til verksins.
Hið nýja hús félagsins er hið glæsilegasta timburhús með mjög góðri aðstöðu innandyra. Húsið er
lokaáfangi í uppbyggingu FFA við Drekagil að sinni.
