Þorraferð í Botna
14/02/2013
| Hólmfríður Guðmundsdóttir
16.-17.febrúar. Þorraferð í Botna. Skíðaferð
Þorraferð í Botna
Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFa Strandgata 23
Fararstjóri: Ingvar Teitsson
Verð: Kr. 6.900 / kr.4.900
Innifalið: Gisting og fararstjórn
Ekið að Svartárkoti, gengið þaðan á skíðum í Botna, skála FFA í Suðurárbotnum þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið í friðsæld öræfanna.
Haldið heimleiðis næsta dag. Vegalengd um 15 km hvora leið
