Að þessu sinni var ferðin fámenn, margir hættu við vegna veðurútlits þann 16. júlí en þegar upp var staðið brást veðrið ekki. Ferðin var hin besta í alla staði. Fararstjóri var Einar Bjarki Sigurjónsson og honum til aðstoðar var Þuríður Helga Kristjánsdóttir sem tók myndirnar.