Helgarferð í Lamba

Barna- og fjölskylduferð í Lamba helgina 6. til 7. ágúst. Ferðin átti að vera strax eftir verslunarmannahelgi en vegna veðurs var henni seinkað um viku. Börn og foreldrar gengu inn Glerárdal í blíðskapar veðri, gist var eina nótt. Leikið, spilað og sungið áður en lagst var til hvílu. Gengið til baka daginn eftir. Börnin stóðu sig einstaklega vel í alla staði og er fyrirhugað að endurtaka ferðina að ári. Fararstjóri var Jónína Sveinbjörnsdóttir. Myndirnar tók Hulda Jónsdóttir.