Boðið var upp á ferð um Svarfaðardal þann 28. ágúst fyrir eldri félaga í FFA. Miðað var við 65 ára og eldri. Ferðin var ágætlega sótt og var farið með rútu um Svarfaðardal undir leiðsögn Kristjáns E. Kjartanssonar. Myndirnar tók Þorgerður Sigurðardóttir.