Öskjuvegurinn

Árleg ferð um Öskjuveginn var farin 27. - 30. júlí. Fararstjóri var Kristín Irene Valdemarsdóttir og trússari var Jón Marinó Sævarsson. Hópurinn fékk fínasta veður og ekki annað að sjá á myndunum sem fylgja en að þetta hafi verið hin fínasta ferð. Myndirnar tók Kristín Irene.