Skíðaganga á Bárðardal

Skíðaganga í Bárðardal þar sem gengið var í landnámi Gnúpa Bárðar og í Lundarbrekku. Í lok ferðar skall á leiðinda veður með snjókomu. Endað var í Lundarbrekku þar sem góðar veitingar biðu hópsins, heitt súkkulaði, pönsur og kleinur í boði þeirra heiðurshjóna Möllu og Jóhannesar. Fararstjórar voru Jóhannes Áslaugsson og Hjörvar Jóhannesson.

Myndirnar tók Jón M. Ragnarsson