Skíðaganga. Hrafnagil-Öngulsstaðir
Þann 6. apríl, á annan í páskum, fóru 27 manns í skíðagöngu með Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni á Öngulsstöðum. Hann leiddi hópinn frá brúnni við Hrafnagil að Öngulsstöðum. Ferðin gekk vel og eftir góða göngu með sögulegu ívafi fengu þátttakendur höfðinglegar móttökur að Öngulsstöðum þar sem Ragnheiður Ólafsdóttir tók á móti hópnum með kakó og kringlum. Þau hjónin sögðu svo hópnum frá húsakynnum á Öngulsstöðum.
Einhverjir fóru sömu leið til baka, aðrir héldu ferðinni áfram og enn aðrir héldu beint í bílana.
FFA og þátttakendur í ferðinni þakka kærlega fyrir sig. Allir ánægðir og komu heilir heim.
Þetta var sjötta skíðaferð FFA á árinu og hafa rúmlega 100 manns tekið þátt í þessum sex ferðum.
Myndirnar sem fylgja eru teknar af Jóni M. Ragnarssyni, Val Magnússyni, Árna Ólafssyni og Þorgerði Sigurðardóttur











