Gunnar Már Gunnarsson

Gunnar er í sér mikill Eyfirðingur og Akureyringur og dregur aldrei neina dul á það. Hann lagði stund á miðaldafræði og mannvistarlandfræði, m.a. annars í Orkneyjum og Cambridge, og starfaði fyrstu árin eftir nám hjá Alþjóðlegu norðurskautsvísindanefndinni (IASC). Í dag vinnur hann að byggðaþróun fyrir sveitarfélög Norðausturlands og er eftirsóttur gangnamaður víða í landshlutanum. Málefni norðurslóða eru Gunnari þó enn mikið hjartans mál og honum líður best í köldu loftslagi.


Þegar kemur að útivist þá eru fjallgöngur í mestu uppáhaldi, sem og lengri gönguferðir um afskekkt svæði. 


Árið 2026 þá tók Gunnar tók við af Þorgerði Sigurðardóttur sem formaður FFA og situr jafnframt í Félaga- og kynningarnefnd félagsins. Hann á það einnig til að leggja fram krafta sína fyrir Ferðafélag Íslands og tekið þátt í vinnuferðum FÍ á Hornströndum.