Harðarvarða
DAGS
Kl.
9-15
BROTTFÖR Kl.
9
ERFIÐLEIKASTIG
Fararstjórn:
List of services

Lýsing
26. september, laugardagur
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Kristín Irene Valdemarsdóttir
Harðarvarða er á brún Hlíðarfjalls ofan við skíðalyfturnar í um 1150 m hæð. Gengið er frá skíðaskálanum í Hlíðarfjalli meðfram skíðalyftum og svo á slóða frá Strýtu í gegnum sneiðing til norðurs og upp á brún Hlíðarfjalls, Mannshrygg. Þaðan er stefnan tekin til suðurs að Harðarvörðu. Leiðin er nokkuð brött.
Sama leið er gengin til baka.
Vegalengd alls: 8km. Gönguhækkun 660m.
Þátttaka ókeypis
Búnaður
Gönguferðir: 2 skór
Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.
Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:
Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi
Göngustafir ef vill
Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf
Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi
Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt
Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)
Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)
Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.

