DAGS

12.07.2026

Kl.

BROTTFÖR Kl.

8

Lýsing

12.–15. júlí 2026

Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23

Fararstjórn: Selma S. Malmquist


Ekið með rútu í Herðubreiðarlindir. Gist er í skálum FFA við Bræðrafell og Drekagil. Bera þarf allan farangur og því mikilvægt að huga að því sem 

tekið er með. Svæðið sem farið er um státar af sérkennilegum og fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð. 

Nálægðin við Herðubreið hefur líka sín áhrif.

Dagskrá ferðarinnar:

1.d., sunnudagur: Herðubreiðarlindir – Bræðrafell

Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffi er gengið um greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar. Taka þarf með vatn til dagsins

Vegalengd: 19 km.

2.d., mánudagur: Bræðrafell

Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála aðra nótt

Vegalengd: 8–12 km.

3.d., þriðjudagur: Bræðrafell – Dreki

Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil. Gist í skála FFA við Drekagil

Vegalengd: 21–22 km. Gönguhækkun: Engin

4. d., miðvikudagur: Dreki – Askja

Gengið frá Drekagili yfir Dyngjufjöll að Öskju. Ekið heim um kvöldið

Vegalengd: 10–11 km. Gönguhækkun: 650 m.


Hámarksfjöldi 15 manns.


Verð: 72.000 / 77.500 kr. Innifalið: Rúta, gisting í þrjár nætur og fararstjórn.

Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð 10.000 kr. í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. 

Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu fyrirfram, þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.


Hnappur virkar aðeins á dýnamískum síðum
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Lengri ferðir og vetrarferðir: 3 - 4 skór

    Erfiðar ferðir: Nokkuð langar dagleiðir, 6 - 8 klst. Gengið í fjalllendi og jafnvel lausum skriðum. Getur þurft að vaða erfiðar ár. Ef gist er þá er oftast það oftast og þá þarf að bera svefnpoka.


     

    Mjög erfiðar ferðir: Erfiðar og langar dagleiðir yfir 10 klst. Gengið með allt á bakinu, oft í bröttu fjalllendi, lausum skriðum og stórgrýti. Búast má við erfiðum ám. Aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.


    Viðbót við grunn-búnaðarlista fyrir 3 - 4 skó. Sjá grunnlista hér:


    ATH. Fararstjóri tekur fram ef annan búnað þarf


    Í lengri ferðir (1 - 4 dagar) þarf auk grunnbúnaðar:

    Gönguskór sem henta krefjandi aðstæðum utan slóða og veita góðan stuðning

    Bakpoka: Stærri bakpoka ef gengið er með allt á bakinu annars dagspoka. Bakpokinn þarf að vera með bakpokahlíf

    Svefnpoki (og lítinn kodda)

    Inniskó ef gist er í fjallaskálum

    Auka fatnað: Nærföt til skiptanna, sokkar, millilag og auka föt ef fólk blotnar

    Nauðsynlegar snyrtivörur og eyrnatappa

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Mat og hæfilegt magn af orkuríku nesti og drykkjum (eftir lengd, aðstæðum og fyrirkomulagi ferðar)


    Í vetrarferðir (göngu- eða skíðaferðum) þarf auk grunnbúnaðar:

    Utanbrautarskíði með stálköntum (skinn á skíðin)

    Hlífðargleraugu

    Jöklabrodda og ísexi ef leið liggur um brattlendi. Fararstjóri lætur vita ef hana þarf

    Hlýrri fatnað en að jafnaði í sumarferðum: Ullarnærföt, ullarhúfu, ullarvettlinga og vindhelt ysta lag (buxur, jakki og lúffur) eru nauðsynlegur búnaður

    Orkumikið nesti og nóg að drekka (heitt og kalt í ílátum sem ekki frýs í)