DAGS

03.10.2026

Kl.

BROTTFÖR Kl.

13

Lýsing

1 skór

3.–4. október
Brottför kl. 13  á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far með öðrum þurfa að taka þátt í bílakostnaði.

Fararstjórn: Þóroddur Þóroddsson


Létt gönguferð, gisting og kvöldverður. Gist á Hótel Seli í Mývatnssveit.

Gönguferð með Þóroddi á stígum um fallegt umhverfi Skútustaða. Gangan tekur 2 - 2,5 klst. Eftir gönguna verður slakað á í heitum potti við Hótel Sel og síðan snæddur kvöldverður á hótelinu. 


Þeir sem vilja sleppa gönguferðinni mæta á hótelið þegar þeir vilja en gert er ráð fyrir að gönguferðinni ljúki kl. 16-17.


Verð fyrir gistingu á Hótel Seli er 15.000 kr. á mann í tveggja manna herbergi og fyrir einstaklingsherbergi 25.000 kr. Greitt er á hótelinu. Innifalið: Gisting, morgunmatur og fararstjórn. Kvöldverður af matseðli greiddur sérstaklega.


 Skráningu lýkur 3. september því hótelið þarf að vita endanlegan fjölda þá.



Hnappur virkar aðeins á dýnamískum síðum
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Gönguferðir: 1 skór

    Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.



    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff