FFA & Stóri Plokkdagurinn
18. apríl 2026

Plokkum saman - Sunnudagurinn 26. apríl

Sunnudaginn 26. apríl kl. 10 ætlar Ferðafélag Akureyrar að taka þátt í Stóra plokkdeginum í samstarfi við Akureyrarbæ. Félagið fær úthlutað ákveðnum svæðum til að hreinsa.


Mæting er við skrifstofu Ferðafélags Akureyrar að Strandgötu 23. Ruslapokar verða á staðnum svo og nokkrar plokktangir en fólk er hvatt til að taka með sér tangir og hanska.


Gerum ráð fyrir að plokka í tvo tíma eða svo. Að plokkun lokinni verður boðið upp á hressingu í húsnæði FFA við Strandgötu.


Gaman væri að sjá sem flesta, fjölskyldur sérstaklega hvattar til að mæta. FFA hefur verið með í verkefninu síðan 2019 og ávallt verið góð þátttaka, vonandi verður það eins að þessu sinni.


FFA hvetur alla til að tína rusl hvenær sem er á ferðum sínum um bæinn.



Stjórn FFA og viðburðanefnd