FFA tekur þátt í Akureyrarvöku
20. ágúst 2022

Ferðafélag Akureyrar ætlar að leggja sitt af mörkum á Akureyrarvöku 2022 . Félagið boðar því til göngu að Steinmönnum. Gangan hentar flestum og börn og unglingar hafa eflaust gaman að því að spreyta sig og sjá þessa skemmtilegu steinkarla sem standa á Súlumýrunum í 500 m hæð og horfa yfir bæinn okkar. Frá Steinmönnum er mikið og fallegt útsýni í allar áttir.
