08/10/2006 | Ferðafélag Akureyrar

Hæsta fjall Eyjafjarðarsýslu ( 4 skór)

Hæsta fjall Eyjafjarðarsýslu ( 4 skór)

Ekið verður á einkabílum að Holtsseli í Eyjafjarðarsveit og þaðan gengið á fjallið. Líklega verður ekki gengin sama
leið til baka, fer eftir skaplyndi fararstjóra.


Ofan af Kerlingu er í góðu skyggni geysivítt útsýni, frá Austfjarðafjöllum til Strandafjalla og suður til jöklanna flestra.
Nær í suðurátt  fjöllin vestan Inn-Eyjafjarðar yfir Lambárbotna, í austri sést meðfram Röðulshausnum og austur yfir byggðir
Eyjafjarðar, en í norðri eftir endilöngum Súlnafjallgarði.  (Árbók FÍ 1991).


Fararstjóri er Frímann Guðmundsson og brottför er frá skrifstofu FFA kl.8:00.


Verð kr. 1.000.-/1.300.-