19.ágúst: Vesturárdalsleið (3 skór)
14/08/2006 | Ferðafélag Akureyrar
Hér er gengin fáfarin leið milli Skíðadals og Kolbeinsdals í Skagafirði (sjá umfjöllun í Árbók FÍ 1990).

Hér er gengin fáfarin leið milli Skíðadals og Kolbeinsdals í Skagafirði (sjá umfjöllun í Árbók FÍ 1990).
Ekið að Stekkjarhúsum í Skíðadal og þaðan gengið inn Vesturárdal norðan ár og uppúr dalbotninum yfir í
Ingjaldsskál og niður í Kolbeinsdal í Skagafirði. Ef veður leyfir verður gengið á fjallið Ingjald fyrir botni Vesturárdals.
Göngutími ca.8 klst, lengd 15-16 km.
Fararstjóri Una Sigurðardóttir og er brottför frá skrifstofu FFA kl.8:00.
Verð kr.5.100.-/6.000.- (fararstjórn og rúta)
