Aðalfundur FFA
04/08/2008 | Ferðafélag Akureyrar
Aðalfundur FFA var haldinn mánudaginn 31. mars 2008.
Aðalfundur FFA var haldinn mánudaginn 31. mars 2008.
Aðalfundur FFA var haldinn mánudaginn 31. mars 2008.
Í lögum félagsins stendur að til hans skuli boðað í febrúar eða mars ár hvert, svo ekki mátti
þetta seinna vera.
Undanfarnar vikur hefur verið unnið baki brotnu við endurnýjun á kjallara Strandgötu 23 og stefnt að
því að ljúka því fyrir aðalfundinn og það tókst að mestu. Aðeins eftir að leggja flísar
á gólfið. Aðstaðan
í kjallaranum er nú orðin stórglæsileg.
Svo sem venja er á aðalfundi voru fluttar skýrslur stjórnar og allra nefnda félagsins og verða þær birtar í Ferðum í vor.
Hilmar Antonsson var endurkjörinn formaður til eins árs og aðrir í stjórn eru:Einar Hjartarson, varaformaður
Stefán Sigurðsson, gjaldkeri
Fjóla Kristín Helgadóttir ritari
Vignir Víkingsson, meðstjórnandiVaramenn
Kristín Björnsdóttir
Ingvar Þóroddsson.
Ingvar Teitsson var kosinn heiðursfélag FFA en hann var formaður félagsins í 12 ár
Undir liðnum önnur mál var kynnt umhverfisstefna FFA og hana má finna hér
og á "">
heimasíðu.
Myndir frá aðalfundi og úr kjallara má finna hér
og á
heimasíðu.
