08/10/2005 | Ferðafélag Akureyrar

ATHUGIÐ - breyting varð á ferðaáætlun fyrir næstu helgi. Sögugangan í Íshólsdal og Mjóadal  verður á
sunnudaginn 14. ágúst en ekki á laugardaginn. Á laugardeginum verður aftur á móti gengið á Þverbrekkuhnjúk,
1200m.

Á laugardaginn verður gengið frá Hálsi í Öxnadal um Vatnsdal á Þverbrekkuhnjúk, síðan um Bessahlaðaskarð og
Beitarhúsagil að Hálsi þar sem göngunni lýkur.  Ferðin er gráðuð 4 skór og er frekar krefjandi. Lagt verður af stað
frá skrifstofu kl. 8.00.

Á sunnudaginn verður ekið að Íshólsvatni, innarlega í Bárðardal og gengið þaðan í Íshólsdal og Mjóadal.
Þessir dalir geyma merkilega sögu sem kemur eflaust mörgum þægilega á óvart. Fararstjóri er Jón Aðalst. Hermannsson. Ferðin er
gráðuð einn skór og við allra hæfi. Brottför er frá skrifstofu kl. 8.00.

Verð í ferðirnar er 1.000 kr fyrir félagsmenn en 1.300 kr fyrir aðra.

Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 462 2027, virka daga milli 16 og 19.