26/06/2007 | Ferðafélag Akureyrar

Ferðin á Mývatnsheiði verður farin laugardaginn 7. júlí.

Ferðin á Mývatnsheiði verður farin laugardaginn 7. júlí. 7. júlí. Mývatnsheiði, Austurgil(1 skór)

Dagsferð til að skoða eyðibýli og Austurgil. Ekið í Stöng á Mývatnsheiði. Þaðan gengið vestur að eyðibýlinu
Hörgsdal. Síðan gengin bílslóð norður á Laugafell, þaðan er gott útsýni. Þá verður komið við á
eyðibýlunum Laugaseli og Víðaseli. Loks verður gengið niður í Austurgil, sem er mjög stórbrotið hamragil og út að
eyðibýlinu Víðum í Reykjadal. Hópurinn verður sóttur þangað.

Fararstjóri: Ingvar Teitsson

Verð: kr. 4.000/4.800

Brottför kl. 8.00