27/01/2007 | Ferðafélag Akureyrar

Vinnuferð í Dreka 26. - 27. jan 2007



Myndir á myndsíðu.



Skruppum í örstutta vinnuferð í Dreka  um síðustu helgi  með ...

Vinnuferð í Dreka 26. - 27. jan 2007



Myndir á myndsíðu.



Skruppum í örstutta vinnuferð í Dreka  um síðustu helgi  með ...
Vinnuferð í Dreka 26. - 27. jan 2007



Skruppum í örstutta vinnuferð í Dreka  um síðustu helgi  með  eldhúsinnréttinguna í Fjólubúð 
ásamt ýmsu öðru smálegu.   Frá Hrossaborg og inn fyrir Miðfell var snjór en driftir og ís eftir það að Grafarlanda
á.  Fórum þar yfir á vaðinu á ís og áfram minnkaði snjórinn. 'I Lindahrauninu og í Herðubreiðarlindum er svo að
segja snjólaust en þónokkur ís sem frábært var að aka á.  Við Herðubreiðartögl mætti okkur myndarlegt
snjóflóð og á öðrum stað grjót á veginum svo eitthvað hefur gengið á þarna.  Þegar komið var suður fyrir
töglin sást aftur snjór  en ekki var hann til vandræða.  Komum í Dreka rétt fyrir miðnætti dálítll vindur og hiti
+1,5° úti en -2°inni.  Allt í góðu lagi í Dreka frekar snjólétt eins og sjá má á myndum á
myndasíðu.  Komum innréttingunni fyrir í geymslunni í Fjólubúð og Hilmar tók nokkur mál til frekari smíðavinnu í
bænum.  Lögðum af stað heim um kl. 14.00 og var þá kominn 5°hiti og fallegt fjalla veður.   Lentum í smá brasi með 
Grafarlandaánna eins og sjá má en allt hafðist á endanum og vorum komnir til Akureyrar  kl. 21.25. 

Með í för voru Hilmar Antonsson Stefán Stefánsson Árni Ingimarsson og Bjarni ?.



Ingimar Árnason