26/06/2006 | Ferðafélag Akureyrar

2.júlí: Hvanndalabjarg. (2 skór)

2.júlí: Hvanndalabjarg. (2 skór)

Farið verður á einkabílum að Kleifum í Ólafsfirði en þaðan er gengið í Fossdal sem liggur yst af dölum
Ólafsfjarðar. Dalurinn er umlukinn þverhníptum björgum og er þeirra mest  Hvanndalabjarg en á brúnum
þess eru héraðsmörk Ólafsfjarðar að norðan. Við fyrstu sýn virðist dalurinn algjörlega lokaður en þó eru leiðir upp
úr honum til Hvanndala
og á bjargið.


 


Fararstjóri er Helga Guðnadóttir og brottför er frá skrifstofu FFA kl.9:00.


Verð fyrir félagsmenn er kr. 1000.- en kr. 1300 fyrir aðra. Ath. Munið eftir nesti!!