23/06/2009 | Friðfinnur Gísli Skúlason

23. júní. Jónsmessunótt á Kræðufell, 717 m. "/static/files/gonguskor1.gif" />

27. júní. Öxnadalur, Sesseljubúð – Háls "/static/files/gonguskor1.gif" />

28. júní. Lofthellir í Mývatnssveit

23. júní. Jónsmessunótt á Kræðufell, 717 m. "/static/files/gonguskor1.gif" />

27. júní. Öxnadalur, Sesseljubúð – Háls "/static/files/gonguskor1.gif" />

28. júní. Lofthellir í Mývatnssveit

23. júní. Jónsmessunótt á Kræðufell, 717 m. border="0" src="/static/files/gonguskor1.gif" />   

Gengið frá veginum efst í Víkurskarði, um Gæsadal á fjallið Kræðufell. Komið niður sunnan við Fagrabæ um
Hranárskarð þar sem gangan endar. Þetta er þægileg ganga við flestra hæfi.

Fararstjóri: Roar Kvam.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 21.00



27. júní. Öxnadalur, Sesseljubúð – Háls border="0" src="/static/files/gonguskor1.gif" />   

Ferðin hefst þar sem sæluhúsið Sesseljubúð stóð. Gengið upp með Grjótá og fylgt Eystri-Grjótá að
Gilsárskarði. Síðan upp á Varmavatnshólafjall, þaðan er frábært útsýni. Þá er farið niður Vatnsdalinn
meðfram Hraunsvatni og komið niður að bænum Hálsi.

Fararstjóri: Stefán Sigurðsson.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 8.00



28. júní. Lofthellir í Mývatnssveit "FONT-WEIGHT: bold"> 

Ekið að Lúdentsborgum í Mývatnssveit og gengið þaðan að hellinum. Er hann í Ketildyngjuhrauni milli Hvannfells og Búrfells. Heildarlengd
hellisins er um 370 metrar og er hann á fimm hæðum. Er enginn annar hellir hér á landi á svo mörgum hæðum. Ísmyndanir eru stærri og
mikilfenglegri en í öðrum hraunhellum hér á landi. Nauðsynlegur búnaður er ljós og hjálmur.

Fararstjóri: Haukur Ívarsson.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 10.00