08/12/2009 | Friðfinnur Gísli Skúlason

Næstu ferðir Ferðafélags Akureyrar eru vægast sagt við allra hæfi. Þar sem boðið verður upp á jeppaferð frá
föstudegi til sunnudags. Á laugardeginum verður gengið á Kerlingu í Eyjafirði og Súlufjallgarðinn. Á sunnudag er svo auðveld
ganga norður með Skjálfandafljóti frá Fljótsbakka að Vaði.

14. – 16. ágúst. Jeppaferð  border="0" src="/static/files/jeppi1.jpg" />  

Farin verður ferð í Kverkfjöll og nágrenni. Gist í Dreka og Sigurðarskála.

Fararstjóri: Örn Arnarson.

Verð: kr. 4.500 / kr. 6.100

Innifalið: Fararstjórn, gisting.

Brottför frá FFA kl. 16.00

15. ágúst. Kerling, 1538 m. Sjö tinda ferð "/static/files/gonguskor1.gif" /> "FONT-WEIGHT: bold">    

Gengið á hæsta fjall í byggð á Íslandi. Ekið að Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit, farið þaðan á fjallið.
Þar verður ferðinni tvískipt, sumir fara sömu leið til baka, aðrir norður eftir tindum að Súlum og niður í Glerárdalinn þar
sem ferðin endar.

Fararstjórar: Frímann Guðmundsson/Vignir Víkingsson.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 8.00

16. ágúst. Fljótsbakki - Vað "FONT-WEIGHT: bold"> 

Ekið að bænum Fljótsbakka í Þingeyjarsveit. Gengið norður með Skjálfandafljóti að austan í gegnum Einarsstaðaskóg
í Fossselsskóg sem er mjög fallegur. Þaðan að Skipapolli, Ullarfossi og endað við bæinn Vað.

Fararstjóri: Ingvar Teitsson.

Verð: kr. 1.000 / kr. 1.500

Brottför frá FFA kl. 10.00