Opið hús hjá FFA 1. nóvember
26/10/2012 | Ingimar Árnason
Opið hús verður fimmtudaginn 1. nóvember nk. kl. 20:00 í Strandgötu 23.
Ingvar Teitsson kynnir "Almannavegur yfir Ódáðahraun".
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, enginn aðgangseyrir. Kaffi á könnunni.
___________________________________________
Lumar þú á ferðasögu og/eða myndum og hefðir áhuga á að deila því með okkur á opnu húsi? Ef svo er vinsamlega sendu tölvupóst á hafdis@valur.net með upplýsingum og við setjum okkur í samband við þig.
