21/06/2007 | Ferðafélag Akureyrar

16. – 22. júlí. Öskjuvegur, sumarleyfisferð. Trússferð(3 skór)

16. – 22. júlí. Öskjuvegur, sumarleyfisferð. Trússferð(3 skór)
16. – 22. júlí. Öskjuvegur, sumarleyfisferð. Trússferð(3 skór)

Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað, en svefnpoka og nesti þarf að bera í Bræðrafell og þaðan í Dreka. Að
öðru leyti er ekið með farangur á milli skála. Fullt fæði, gisting, akstur og fararstjórn er innifalið í verðinu.

1. d. Ekið í Herðubreiðarlindir.

2. d. Gengið eftir stikaðri leið úr Herðubreiðarlindum, vestur í skála FFA við Bræðrafell. Vegalengd 17 – 19 km.

3. d. Gengið eftir stikaðri leið suður frá Bræðrafelli að Dreka, skála FFA austan undan Dyngjufjöllum. Vegalengd 20 – 22 km.

4. d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, e.t.v. farið í sund í Víti. Hópurinn verður
sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður tilbaka að Dreka.

5. d. Ekið upp í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í
Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 19 – 20 km.

6. d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal og í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20 – 22 km.

7. d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15
– 16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng, farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Snæddur kvöldmatur í Gamla
Bænum í Reynihlíð (ekki innifalið í verðinu).

Ekið til Akureyrar.

Fararstjóri: Ingvar Teitsson

Verð: Kr. 44.000/49.000

Brottför kl. 16.00