15/03/2008 | Ferðafélag Akureyrar

20. – 22. mars. Laugafell. Skíðaferð 3 skór  

20. – 22. mars. Laugafell. Skíðaferð 3 skór  
Á fimmtudegi (skírdag) er gengið frá Hólsgerði og í Bergland við Urðarvötn og gist þar. Á föstudegi er haldið
áfram í Laugafell. Á laugardegi er gengið norður að Urðarvötnum með viðkomu í Berglandi og niður Vatnahjalla að bænum
Hólsgerði.

Þetta er toppupplifun fyrir fjallaskíðafólk. Svo bíður laugin notalega í Laugafelli.



Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.

Verð: kr. 3.400 / kr. 4.400

Innifalið: Fararstjórn, gisting.

Brottför kl. 13.00



ATH! Brottfarardag og brottfarartími! Fimmtudaginn (skírdag) 20. mars kl. 13.00





Smellið hér til að sjá myndir úr ferðum sem farnar
voru apríl 2004 og hér apríl 2007



Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins

miðvikudaginn 19. mars milli kl. 17.30 og  19.00 eða í

tölvupósti ffa@ffa.is



Ferðanefnd   FFA