Gönguleikurinn Þaulinn 2026
7. júní 2026

Gönguleikur Ferðafélags Akureyrar

Þaulinn er árlegur gönguleikur hjá Ferðafélagi Akureyrar sem hóf göngu sína árið 2010. Árið 2017 bættist krakkaþaulinn við sem ætlaður er börnum 12 ára og yngri. Leikurnn hefst um miðjan júní og lýkur 20. september. Fljótlega eftir það er dregið úr innsendum þátttökublöðum.


Leikurinn skiptist í flokk fullorðinna annars vegar og flokk krakka yngri en 12 ára hins vegar. Hann gengur út á að fara á fimm stöðvar fyrir fullorðna og þrjár til fjórar stöðvar fyrir krakka.

Leikurinn er skemmtileg og góð afþreying fyrir alla fjölskylduna og glæsilegir vinningar! Til að eiga möguleika á vinningi þarf að skila útfylltu og götuðu svarblaði á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar.

Lokafrestur til að skila inn þátttökublaði er 20. september 2026



Á hverri stöð eru gögn frá FFA; kassi með plastumslagi og gestabók. Í umslaginu er gatari, kort og leyniorð eða þraut sem á að skrifa á svarblaðið.


Þátttökublöð verður hægt að fá á skrifstofu FFA, Strandgötu 23, Akureyri.

Einnig verður hægt að prenta þau út af heimasíðunni, þegar leikurinn verður birtur þar.