Heljardalsheiði
1. júlí 2013

Brottför kl. 8
í rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 13.500/13.000 Innifalið: Fararstjórn, akstur.
Gengin er forn þjóðleið frá Atlastöðum í Svarfaðardal upp að Stóruvörðu þar sem gönguskáli Svarfdæla er.
Leiðin liggur eftir götuslóð niður í Heljardal þar sem þarf að vaða Heljará. Neðan við Heljarbrekkur er Kolbeinsdalsá sem vaða þarf yfir, (verður ferjað ef mikið vatn er í ánni). Þá er gengin vegslóð að eyðibýlinu Fjalli til móts við bílinn. Ef aðstæður leyfa verður staldrað við á Hólum.
