Hrekkjavaka 29. október
12. nóvember 2026

Þann 29. október stóð Barna- og fjölskyldunefnd FFA fyrir Hrekkjavökugöngu í Kjarnaskógi í annað sinn. Það er skemmst frá því að segja að u.þ.b. 200 manns á öllum aldri tóku þátt í göngunni en veðrið var eins og best var á kosið. Genginn var stuttur hringur þar sem göngufólk varð fyrir ýmiss konar hrekkjum. Það er óhætt að segja að nefndin hafi staðið sig vel í að "skemmta og hræða" börn og fullorðna en eins og sést á einni myndinni voru þau með nokkra aðstoðarmenn við verkið.