Haustfjöll með Ásdísi og Sirrý

12. september - 3. október 2026

Nr Dagsetning Dagur Kl Ferð
1 19. maí Þriðjudagur 18 - 22 Fyrsta ferð - byrjum létt
2 25. maí Mánudagur 8 - 16 Annar í hvítasunnu
3 31. maí Sunnudagur 8 - 16
4 2. júní Þriðjudagur 18 - 22
5 7. júní Sunnudagur 8 - 16
6 9. júní Þriðjudagur 18 - 22
7 16. júní Þriðjudagur 18 - 22
8 21. júní Sunnudagur 8 - 16 Illagilsfjall og Nautárhnjúkur (3 skór) / Sjósund og pottar á Hauganesi
  • Fyrirkomulag og ferðir

    Erfitt er að setja nákvæmlega niður með löng um fyrirvara hvaða ferð hentar hverju sinni.


    Það fer því eftir aðstæðum hverju sinni hvaða leið verður fyrir valinu. Veðurspá og önnur skilyrði koma til með að stjórna því. Farið er á einkabílum.


    Hvert verður farið:

    Valin verða m.a. fjöll í Eyjafirði, Tröllaskaga og jafnvel Gjögraskaga / Flateyjarskaga og vegalengdir á bilinu 10-15 km. Fjöll verða valin eftir veðri og vindum.



Fararstjórar áskilja sér rétt til að breyta dagsetningum ef
veðurspá er óhagstæð eða af öðrum ástæðum
sem ekki ræðst við!


"FJÖLLIN HEILLA"

Verkefnið „Haustfjöll með Ásdísi og Sirrý“ er fyrir alla sem eru í góðu gönguformi eftir sumarið og miðast
erfiðleikastig og gönguhraði ferða við allt að þrjá skó.

(sjá viðmið um erfiðleikastig)


Fyrirhugað er að fara fjórar lengri göngur (dagsgöngur), allar um helgar og lagt af stað kl. 9.


Umsjón með verkefninu hafa Ásdís Skúladóttir og Sigurbjörg Rún Jónsdóttir (Sirrý). Alltaf verða tveir fararstjórar. Vel verður haldið utan um hópinn með öruggri fararstjórn, face­bókarsíðu og góðri upplýsingagjöf.


Lágmarksfjöldi er 10 manns.


Verð: 19.000 kr. fyrir félaga í FFA og FÍ. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir utanfélagsmenn kostar verkefnið 24.000 kr. Greiða þarf þegar skráningu lýkur, krafa verður stofnuð í netbanka.

Skráningu lýkur 9. september 2026

  • Mikilvægt

    Ekki er endurgreitt eftir að verkefnið er hafið.

    Í verkefnum og ferðum FFA ferðast þátttakendur á eigin ábyrgð. FFA tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingu.

    Hagstætt er að gerast félagi í FFA. Með félagsskírteini FFA fæst afsláttur í mörgum sportvöruverslunum auk afsláttar í ferðir, verkefni og gistingu í skálum hjá FFA og FÍ, sjá nánar: Gerast félagi í FFA, þar getið þið skráð ykkur í félagið.