Botnaleið – gönguskíðaferð

Þann 17. apríl var gengið inn og upp Skútudal að fjallshryggnum sem skilur að Skútudal og Hólsdal. Tekin var nestispása undir uppgönguskarðinu. Haldið rakleiðis til austurs skammt frá Presthnjúk og eftir hryggnum áleiðis í Hólsskarð. Skíði með stálköntum voru nauðsynleg. Af hryggnum var gott útsýni til margra tinda á utanverðum Tröllaskaga. Frá skarðinu var ágætis rennsli, en nokkuð hart í byrjun, niður í botn Ámárdals. Eftir stutt stopp í dalbotninum var gengið áleiðis í skarðið milli Ámárhyrnanna fremri og efri. Haldið var hæðinni í botni Héðinsfjarðar eftir hefðbundinni leið og stefnt á Möðruvallahálsinn. Af hálsinum var gott rennsli og færi niður að hól ofarlega í botni Skeggjabrekkudals og þar var áð. Að lokum renndi hópurinn sér niður dalinn norðan megin Garðsár í átt að Golfskálanum. Farið var yfir tvö stór snjóflóð sem fallið höfðu nokkrum dögum áður. Fararstjóri var Björn Z Ásgrímsson hann tók myndirnar.