Jógaferð í Garðsárdal
Góð þátttaka var í fyrstu jógaferð FFA sem farin var 24. apríl. Þuríður Helga Kristjánsdóttir og Tinna Sigurðardóttir leiddu þessa göngu. Gengið rólega og í kyrrð um skógareitinn í Garðsárdal. Stoppað nokkrum sinnum til að hugleiða, gera jógaæfingar, njóta og hlusta á náttúruna. Þuríður Hegla las líka nokkur frumsamin ljóð m.a. um áhrif náttúrunnar á manneskjuna. Myndir, Þorgerður Sigurðardóttir.









