Málmey, saga, náttúra og menning
Svo mikil þátttaka var í ferðinni 5. júní að fara þurfti tvær ferðir því ekki komust nema 18 manns í bátinn í hverri ferð. Ekið var til Hofsóss þaðan sem siglt var út í Málmey með Drangey tours en leiðsögumaður frá þeim fræddi fólk um fuglalíf, sögu og náttúruna í eynni. Farið var í útsýnissiglingu að Þórðarhöfða þar sem er stórkostlegt stuðlaberg auk þess sem Drangey er einnig í sjónmáli. Fararstjóri var Herdís Zophoníasdóttir. Myndirnar tók Sigríður Stefánsdóttir og Frímann Guðmundsson.













