Helgarferð í Lamba
Þetta er annað árið í röð sem efnt er til Barna- og fjölskylduferðar í Lamba á Glerárdal. Fararstjóri helgina 12. til 13. ágúst var Jónína Sveinbjörnsdóttir. FFA vill gjarnan bjóða upp á svona ferð á hverju sumri til að fjölskyldur kynnist þessum fallega dal og afskaplega vistlegum og góðum skála FFA sem er inni á dalnum.














