Eyðibýli í Héðinsfirði

Söguferð um eyðibýli í Héðinsfirði þann 19. ágúst mæltist vel fyrir hjá þátttakendum en alls voru 33 í ferðinni. Gengið var í kringum vatnið og saga eyðibýla og ábúenda sögð. Fararstjóri var Björn Z. Ásgrímsson. Myndirnar tóku Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Svala Hrönn Sverrisdóttir.