Herðubreiðarlindir-Bræðrafell-Askja
Fjögurra daga ferð FFA dagana 14. til 17. Júlí þar sem gengið er frá Herðubreiðarlindum í Bræðrafell og dvalið þar í tvær nætur. Þaðan er svo gengið í Dreka og síðasta daginn er gengið að Öskju. Veðrið lék við þáttakendur sem nutu veðurblíðunnar, kyrrðarinnar og víðáttunnar á fjöllum í fjóra daga. Fararstjórar voru Fjóla K. Helgadóttir og Hjalti Jóhannesson og tóku þau jafnfram myndirnar.









