Sjálfsrækt og náttúruskoðun á Glerárdal
Sjálfsrækt og Náttúruskoðun á Glerárdal helgina 16. til 18. ágúst. Mikil skráning var í þessa ferð en þegar nær dró leist fólki ekki á veðurspána og hættu þá einhverjir við. Það var því frekar fámennur hópur sem fór og átti góða helgi í dalnum. Fararstjórar voru þær Ásdís Skúladóttir og Birna G. Baldursdóttir sem jafnfamt tóku myndirnar.





















