Skútustaðir-Litlaströnd-Grænavatn-Skútustaðir

Þriðja Góðviðrisgangan var farin þann 26. Október. Gengnar voru svokallaðar Messugötur um Skútustaðaengjar að Kráká og bænum Litluströnd. Síðan var gengið eftir gömlum götum og bílslóðum að Grænavatni þar sem var stoppað um stund og fræðst um sögu staðarins og gömlu húsanna þar. Fararstjóri var Þóoddur Þóroddsson.